About
Sjoddý - Sigríður Oddný Jónsdóttir
I am an Icelandic artist with studios in Akureyri and Hafnarfjörður.
My work is inspired by the landscapes, coastal villages, and ever-changing light of Iceland. I am drawn to the quiet stories found in old houses, harbors, and shorelines—places shaped by both nature and human presence. Rather than depicting specific locations, my paintings emerge from memory, atmosphere, and a sense of belonging.
Through simplified forms, rich textures, and carefully balanced color, I seek to create works that evoke warmth, calm, and reflection. My paintings are interpretations of both inner and outer landscapes, inviting the viewer to pause and connect with a feeling rather than a place.
The relationship between people and the sea is a recurring theme in my work. Icelandic fishing villages, weathered homes, and coastal horizons speak of resilience, community, and continuity. These elements form an ongoing source of inspiration and are woven throughout my artistic practice.
Exhibitions and Collections
I have held numerous solo exhibitions and participated in group exhibitions throughout Iceland. My work is represented in private collections in many countries and has found homes with collectors both in Iceland and abroad.
Education
2012–2013 — University of Akureyri, Art History
2010–2013 — Akureyri School of Visual Arts, Fine Arts Department
2009–2010 — Akureyri School of Visual Arts, Foundation Studies
2005–2009 — Örn Ingi Art School
1977–1981 — Akureyri Junior College (MA)
In addition to formal studies, I have attended numerous workshops and courses led by Icelandic and international artists.
Memberships
Member of the Association of Icelandic Visual Artists (SÍM).
Sjoddý - Sigriður Oddný Jónsdóttir
Ég er íslenskur myndlistarmaður með vinnustofur á Akureyri og í Hafnarfirði.
Í verkum mínum sækist ég eftir að fanga það sem snertir mig í íslensku landslagi og mannlífi — kyrrðina, birtuna, litina og sögurnar sem búa í gömlum húsum, sjávarþorpum og strandlengjum landsins. Ég sæki innblástur í staði sem margir þekkja, en einnig í minningar, stemningu og þá tilfinningu að tilheyra ákveðnum stað.
Málverkin eru ekki nákvæmar lýsingar á raunveruleikanum heldur túlkun á því sem situr eftir í huganum. Með einfölduðu formmáli, sterkum litum og áferð leitast ég við að skapa verk sem vekja hlýju, ró og tengingu við náttúru og heimkynni.
Mörg verka minna fjalla um samband manns og sjávar. Sjávarþorpin, bátarnir og húsin sem kljást við veður og vind bera með sér sögu seiglu, samfélags og vonar. Þessi tengsl við hafið eru rauður þráður í listsköpun minni.
Sýningar og söfn
Ég hef haldið fjölmargar einkasýningar og tekið þátt í samsýningum víða um land. Verk mín eru í einkaeigu safnara í fjölmörgum löndum og hafa fundið sér heimili bæði á Íslandi og erlendis.
Úrval verka má skoða á heimasíðu minni og á alþjóðlegum listveitum þar sem ég sýni og sel verk mín.
Menntun
2012–2013 — Háskólinn á Akureyri, listasaga
2010–2013 — Myndlistarskólinn á Akureyri, myndlistardeild
2009–2010 — Myndlistarskólinn á Akureyri, fornámsdeild
2005–2009 — Myndlistarskóli Örn Inga
1977–1981 — Menntaskólinn á Akureyri (MA)
Auk formlegs náms hef ég sótt fjölmörg námskeið og vinnustofur undir leiðsögn íslenskra og erlendra listamanna.
Félagsaðild
Félagi í SÍM — Sambandi íslenskra myndlistarmanna.